AF HVERJU ÆTTIR ÞÚ AÐ
LEITA TIL SOS LAGNA?

Við erum sérfræðingar
á öllum sviðum pípulagna 
 

Við höfum yfir 20 ára
farsælan feril

Við höfum getu til að takast
á við stærstu verkefni

Við finnum hagkvæmustu
og bestu lausnina fyrir þig 

Aðalsmerki okkar er snyrtilegur 
frágangur og umgengni

Viðskiptavinir okkar
mæla með okkur

 

Blog Index
The journal that this archive was targeting has been deleted. Please update your configuration.
Navigation

ÞJÓNUSTA

Viðgerðir

Við bjóðum þér að koma á staðinn, gera úttekt á lögnum, lagnakerfum og gera þér verðtilboð, gjald fyrir verkskoðun og tilboð er 35.000 kr og akstur 6.475 kr án vsk, ef tilboði er tekið fellur gjaldið niður.

Nýlagnir

Tökum að okkur stór sem smá verkefni í nýlögnum.  Notum nýjustu efni og aðferðir.  Höfum getu til að takast á við stór verkefni á þessu sviði

Breytingar

Önnumst breytingar á eldri lögnum og lagnakerfum.  Við erum þekkt fyrir snyrtilegar og hagkvæmar lausnir þegar kemur að breytingum og endurnýjun á lögnum í eldri húsum.  Aðalsmerki okkar er snyrimennska og góð umgengni

Viðhald

Sinnum viðhaldi á öllum tegundum lagna og lagnakerfa.  við leggjum áherslu á fyrirbyggjandi viðhald með því að skoða alla þætti kerfisins og gera viðeigandi ráðstafanir.  Gerum viðhaldssamninga við fyrirtæki og húsfélög sem m.a. felur í sér að við stillum hitakerfi vor og haust til að tryggja hámarksorkunýtingu.

Fyrirtækjaþjónusta

Við bjóðum fyrirtækjum heildarlausnir á sviði pípulagna.  Við þekkjum vel til þarfa fyrirtækja enda eigum við að baki langan farsælan feril í þjónustu við fasteignafélög á borð við Félagsbústaði og Búseta. 

Þjónusta við húsfélög

Við höfum langa reynslu af þjónustu við húsfélög og þekkjum vel til þeirra þarfa. Við mætum á staðinn tvisvar á ári, yfirförum mælagrind og stillum innstreymi til þess að ná hámarkshagkvæmni í orkunýtingu.

Drenlagnir, skólplagnir og snjóbræðslukerfi

Sjáum um að leggja og endurnýja drenlagnir, skólplagnir og snjóbræðslulagnir.  Útvegum allan búnað sem þarf til verksins og sjáum um það frá upphafi til enda.